Flakk um endurnýtingu bygginga
Manage episode 398101930 series 1312385
เนื้อหาจัดทำโดย RÚV เนื้อหาพอดแคสต์ทั้งหมด รวมถึงตอน กราฟิก และคำอธิบายพอดแคสต์ได้รับการอัปโหลดและจัดหาให้โดยตรงจาก RÚV หรือพันธมิตรแพลตฟอร์มพอดแคสต์ของพวกเขา หากคุณเชื่อว่ามีบุคคลอื่นใช้งานที่มีลิขสิทธิ์ของคุณโดยไม่ได้รับอนุญาต คุณสามารถปฏิบัติตามขั้นตอนที่แสดงไว้ที่นี่ https://th.player.fm/legal
Afleiðingar ákvarðana dagsins í dag í mannvirkjagerð móta umgjörð um daglegt líf okkar og kynslóðanna sem á eftir koma. Borgin hefur byggst á löngum tíma, þó svo að höfuðborgin og bæir um landið hér, séu unglingar í stærra samhengi. Virðing fyrir liðinni tíð, skipulagningu og notkun er menningararfleið, sem þarf að umgangast af ákveðinni virðingu og nærgætni. Við ætlum að huga að endurnýtingu í stórum dráttum í þættinum í dag. C 40 er alþjóðleg samkeppni með yfirskriftinni Reinveting cities eða enduruppgötvun borga. Fyrstu verðlaun komu til Íslands í fjórða sinn enda hugmyndin stórbrotin og frumleg, við ræðum við Maríus Þór Jónasson byggingaverkfræðing og verkefnastjóra fjölmenns hóps sem vann að þróun hugmyndarinnar. Við heyrum í Vigni Frey Helgasyni arkitekt og borgarfræðings, sem starfar í Osló, en byrjum með Bjarka Gunnari Halldórssyni arkitekt, sem skrifaði skemmtilega grein í Kjarnan fyrir skemmstu um arkitektúr og pólitík
…
continue reading
197 ตอน