Your weekly rugby league podcast from BBC Radio 5 Live featuring the latest news, analysis and interviews with Tanya Arnold.
…
continue reading
Player FM - Internet Radio Done Right
Checked 4M ago
เพิ่มแล้วเมื่อ sevenปีที่ผ่านมา
เนื้อหาจัดทำโดย Knattspyrnufélagið Valur - Podcast เนื้อหาพอดแคสต์ทั้งหมด รวมถึงตอน กราฟิก และคำอธิบายพอดแคสต์ได้รับการอัปโหลดและจัดหาให้โดยตรงจาก Knattspyrnufélagið Valur - Podcast หรือพันธมิตรแพลตฟอร์มพอดแคสต์ของพวกเขา หากคุณเชื่อว่ามีบุคคลอื่นใช้งานที่มีลิขสิทธิ์ของคุณโดยไม่ได้รับอนุญาต คุณสามารถปฏิบัติตามขั้นตอนที่แสดงไว้ที่นี่ https://th.player.fm/legal
Player FM - แอป Podcast
ออฟไลน์ด้วยแอป Player FM !
ออฟไลน์ด้วยแอป Player FM !
พอดคาสต์ที่ควรค่าแก่การฟัง
สปอนเซอร์
<
<div class="span index">1</div> <span><a class="" data-remote="true" data-type="html" href="/series/from-creative-passion-to-profit">From Creative Passion To Profit</a></span>


In the creative world, passion and talent are essential. But understanding the business side is fundamental for sustained success. "From Creative Passion To Profit" bridges the gap between creativity and commerce, providing you with the tools to manage your finances, develop marketing strategies, and grow your entrepreneurial mindset. By focusing on practical financial and business advice, specifically for individual artists and creatives, this podcast will provide valuable and focused support. Each episode delves into topics such as crafting a winning business plan, demystifying taxes, pricing your work confidently, and overcoming the starving artist mentality. Our goal is to equip you with actionable insights to make informed decisions, ensuring your creative practice not only survives but flourishes. Join us as we explore the intersection of art and business, helping you turn your passion into a profitable and fulfilling career. Subscribe today and take the first step towards mastering your creative enterprise with From Creative Passion To Profit!
Valur - Hljóðvarp
ทำเครื่องหมายทั้งหมดว่า (ยังไม่ได้)เล่น…
Manage series 2328853
เนื้อหาจัดทำโดย Knattspyrnufélagið Valur - Podcast เนื้อหาพอดแคสต์ทั้งหมด รวมถึงตอน กราฟิก และคำอธิบายพอดแคสต์ได้รับการอัปโหลดและจัดหาให้โดยตรงจาก Knattspyrnufélagið Valur - Podcast หรือพันธมิตรแพลตฟอร์มพอดแคสต์ของพวกเขา หากคุณเชื่อว่ามีบุคคลอื่นใช้งานที่มีลิขสิทธิ์ของคุณโดยไม่ได้รับอนุญาต คุณสามารถปฏิบัติตามขั้นตอนที่แสดงไว้ที่นี่ https://th.player.fm/legal
Allt um það sem er í gangi að Hlíðarenda. Valsara alert!
…
continue reading
95 ตอน
ทำเครื่องหมายทั้งหมดว่า (ยังไม่ได้)เล่น…
Manage series 2328853
เนื้อหาจัดทำโดย Knattspyrnufélagið Valur - Podcast เนื้อหาพอดแคสต์ทั้งหมด รวมถึงตอน กราฟิก และคำอธิบายพอดแคสต์ได้รับการอัปโหลดและจัดหาให้โดยตรงจาก Knattspyrnufélagið Valur - Podcast หรือพันธมิตรแพลตฟอร์มพอดแคสต์ของพวกเขา หากคุณเชื่อว่ามีบุคคลอื่นใช้งานที่มีลิขสิทธิ์ของคุณโดยไม่ได้รับอนุญาต คุณสามารถปฏิบัติตามขั้นตอนที่แสดงไว้ที่นี่ https://th.player.fm/legal
Allt um það sem er í gangi að Hlíðarenda. Valsara alert!
…
continue reading
95 ตอน
ทุกตอน
×V
Valur - Hljóðvarp

St by Knattspyrnufélagið Valur - Podcast
Vængjum Þöndum í uppgjaðarham með Jóa Skúla og Halla Dan. Besta deildin fer aftur af stað um helgina á "Hlutlausum" velli.
V
Valur - Hljóðvarp

1 EVRÓPUDAGUR í Kaplakrika!! 1:00:01
1:00:01
ลิสต์เล่นในภายหลัง
ลิสต์เล่นในภายหลัง
ลิสต์
ถูกใจ
ที่ถูกใจแล้ว1:00:01
Agnar Smári og Jakob Martin hjá Vængjum Þöndum. Er hægt að hita upp EvrópuTvennu betur en með þeim? Alvarlegu nóturnar fyrst en keppni og spurningar í seinni hálfleik. Nýtt lag frumflutt seint í þættinum!
Vika að baki og ný hafin. Vængjum Þöndum gerir upp liðna viku hjá Val með Fróða manninum og yfirþjálfara knattspyrnudeildarinnar, Halla Heimis.
V
Valur - Hljóðvarp

1 Upphitun fyrir Evrópudeildina 1:09:36
1:09:36
ลิสต์เล่นในภายหลัง
ลิสต์เล่นในภายหลัง
ลิสต์
ถูกใจ
ที่ถูกใจแล้ว1:09:36
Vængjum Þöndum í upphitun fyrir Evrópudeildina í handbolta. Franzarinn og sá Fróði fóru yfir helstu liðin sem Valur og FH mæta, hringdu til Makedóníu og leynigestur frá óþekktu landi.
Vængjum þöndum á mánudegi. Franzarinn, Halli Dan og Viktor Unnar fara yfir Vikuna í Val. Áhorfendamet í sögu kvennaboltans á Íslandi, Evrópa í handboltanum, 2 góðir í röð á strákunum í Bestu en bara 1 stig og Bónusdeildin er byrjuð! VÁ mikið
Franzarinn í hinu virta Gústa loungi með Arnari Sveini, Benna Bó og Öddu Baldurs. Fótboltinn ræddur, uppgjör á deildarkeppninni og úrslitaleikir framundan.
Franzarinn og sá fróði fá góðan gest upp í Gústa Loungið
Vængjum þöndum í Hollandi með meistaraflokki kvenna í knattspyrnunni í Champions League fýling. Franzarinn fær Öddu og Gísla til sín í kvöldchatt.
Jói Skúli og Halli Dan kíkja á Franzarann upp í Lenovo-stúku, orð eru óþarfi.
Gaupi og Baldvin Fróði kíkja á Daníel Franz og hita vel upp fyrir handbolta tímabilið hjá Val. Evrópukeppni comming up, Meistarar meistaranna og margt fleira í máli og tali.
Daníel Franz fær Öddu Baldur, Hallgrím Heimisson og Lillý Rut í heimsókn og ræðum um bikarleikinn og undankeppni Champions League.
Daníel Franz og Benni Bó fá Evrópumeistarann Óskar Bjarna í heimsókn og kryfja Evrópudrauminn okkar í smáeindir. Þetta var sko enginn venjulegur draumur.
Benni, Danni og Jói í Lenovo Stúkunni Úrslit Mjólkurbikarsins, Arnar Rekinn og Tufa inn, stórleikur gegn blikum karlamegin.
V
Valur - Hljóðvarp

Stutt og skorinort kvölddropp. Gósentíð í félaginu. Þvílíkt og annað eins. Stelpurnar okkar að fara í úrslitaeinvígið við Hauka á morgun, strákarnir unnu Njarðvík í körfunni í gær og leiða nú einvígið. Í fótboltanum kemur KA í heimsókn á afmælisdaginn á laugardag og stelpurnar voru suður með sjó í kvöld. Svo er það Afturelding í handboltanum og handan við hornið er úrslitaeinvígi um Evrópubikarinn við Olympiacos. Við fórum yfir allt þetta helsta en handboltinn var í fyrirrúmi. Sérfræðingurinn Arnar Daði var á línunni og við spáðum í úrslitakeppnirnar í Olís og hituðum fyrir Evrópuævintýrið sem er framundan. Í seinni hlutanum slógum við svo á þráðinn til Gústa Jó og hituðum fyrir úrslitaeinvígið í handboltanum kvennamegin, sem hefst á morgun á Hlíðarenda, þar sem við mætum Haukum. Mætum öll!…
Þá rúllum af stað með nýtt season af Vængjum þöndum enda ærinn ástæða til, þegar allt er að fara á fullt í félaginu okkar. Við tókum upp í hádeginu í spánýju Kók-stúdíói og hlökkum til að færa ykkur þáttinn reglulega næstu misseri og allskyns skemmtilegt framundan. Það stendur til að stækka teymið á bak við Vængjum þöndum sem mun skila sér í enn betri gæðum og fleiri þáttum. Við fórum að sjálfsögðu yfir Tvíhöfða kvöldsins í körfunni og handboltanum, hituðum upp fyrir úrslitakeppnirrnar og ræddum vel og lengi um upphafið á fótboltasumrinu sem hófst um síðustu helgi. Fínn pakki fyrir spennandi kvöld framundan. Á línunni var hinn eini sanni Björgvin Páll og Tómas Steindórsson, körfuboltasérfræðingur.…
Vængirnir hófu sig til flugs á ný og við tókum lauflétta yfirferð yfir það helsta sem hefur verið að gerast í okkar ástkæra félagi og þeir Haukur Páll og Óskar Bjarni á línunni. Gerist varla betra. Óskar talaði um stemninguna í Val þessa dagana en hann einbeitir sér nú fyrst og fremst að meistaraflokki karla meðan einn af okkar dáðustu sonum Anton Rúnarsson, fer fyrir yngri flokka starfinu. Það stoppaði ekki Anton í að vera á bekknum gegn HC Motor. Óskar fer vel yfir það einvígi og dagskrána í kringum leikinn. Það verður húllumhæ niðu í Val á laugardag og við endurvekjum Evrópukvöldin goðsagnakenndu frá því síðasta vetur. Siðan er það Haukur Páll sem er kominn í nýtt hlutverk sem aðstoðarþjálfari Arnars Grétarssonar. Þeir félagar voru nýbúnir að stýra æfingu þegar við slógum á þráðinn. Við fórum yfir þessi kaflaskipti hjá Hauki, nýja starfið og fórum aðeins yfir þessu mögnuðu 13 ár sem hann hefur átt í Val.…
Í tilefni af lokum tímabilsins hjá karlaliðinu í fótbolta var blásið til uppgjörsþáttar í Vængjum þöndum. Við fengum góðan gest til að fara yfir sumarið. Jóhann Skúli kom einbeittur til leiks beint frá borg Englanna, Los Angeles. Við fórum aðeins yfir leik stelpnanna í í meistaradeildinni í gær áður en tekið var til við viðurkenningar. Hringborðið valdi besta leikmann sumarsins að sínu mati og sá var á línunni. Hlusta þarf til að komast að valinu. Þá var valið fallegasta markið, óvæntasta hetjan, besti leikurinn og fleira og fleira. Í lokin heyrðum við í Patrick okkar Pedersen en þær gleðifréttir bárust fyrir skömmu að hann ætlaði að vera hjá okkur næstu tvö árin. Við stefnum svo á svipað uppgjör kvennamegin í næsta þætti.…
Stúdíó Borgó tók vel a móti löskuðum Vængjum en Jóhann Alfreð komst ekki vegna anna við upptaka a auglýsingu. En Benni og Breki settust niður og heyrðu hljóðið i okkar dásamlegu þjálfurum, Gústa Jóh og Finn Frey. Ágúst er að fara etja kappi við rúmenska ofurliðið Dunarea en stúlkurnar okkar stoðu vel i hárinu a stjörnupryddu liði. Finnur Frey var svo með sitt lið i generalprufu i leiknum meistarar meistaranna a Sauðárkróki og við hituðum upp fyrir spennandi vetur í körfunni með honum. Einnig fékk Patrik Pedersen sinn sess enda buin að jafna sjálfan Hemma Gunn i mörkum. Þa var farið yfir herrakvöldið sem verður fyrsta föstudag i nóvember.…
Þvílíkur dagur fyrir þetta dropp! Við hófum okkur til flugs í hádeginu enda nóg um að vera í félaginu nú þegar handboltinn er kominn á fulla ferð. Við hreinlega lágum í símanum í tæpan klukkutíma. Slógum meðal annars á þráðinn til Fanndísar Friðriksdóttur og spurðum hana út í ferðalag stelpnanna til Albaníu, leikina þar og dráttinn á föstudag sem er framundan í Meistaradeild kvenna. Við ræddum líka lokasprettinn í Bestu deild kvenna en þegar við bjölluðum lá ekki fyrir að Fanndís og liðsfélagar færu á koddann í kvöld sem Íslandsmeistarar. Til hamingju stelpur, Pétur, Matti og þið öll! Breki og Benni gáfu skýrslu um leik Vals og FH í handboltanum á mánudagskvöld og við slógum í kjölfarið til Björgvins Páls, markmanns og nýs aðstoðarþjálfara og hleruðum hann um tímabilið framundan og Evrópuverkefnið Í Litháen um komandi helgi en menn ætla langt í þeirri keppni. Eins og fram hefur komið á þessum vettvangi eiga tæknimál og Vængjum þöndum ekki alltaf saman. Því miður var seinni hluti viðtalsin við Bjögga á vitlausri rás en við treystum á að fá kappann aftur til okkar í spjall sem fyrst. Og svo er það karlaboltinn. Úrslitakeppni Bestu deildarinnar hefst um helgina og Arnar Grétarsson, þjálfari var á línunni. Við fórum aðeins yfir sumarið hjá Val, framhaldið í haust og áfram og spurðum út í framtíð Birkis Más.…
Eftir sumarleyfi, tæknivesen og golfbakteríu mættum við vængstífðir og uppveðraðir á fjalir Borgarholtsskóla eða President Borgó eins og hann hefur verið kallaður. Nýtt stúdíó og ný hljóðmynd kynnt til leiks! Og það var heldur betur margt að ræða! Meðal annars var hringt í Elísu Viðars en stelpurnar okkar i fótboltanum eru að fara til Albaniu a mánudag i Evrópukeppnina og þá heyrðum i Valsara vikunnar sem ætlar að endurvekja golfmót Vals núna í september. Við ræddum körfubolta, fyrirkomulagið á sýningarréttinum í handboltanum, 40 ára afmælishátíð Herrakvölds Vals og hvernig eigi að panta sér Hlölla í Öskjuhlíðinni. Allt þetta rúllaði a rúmum 40 mínútum en tók samt marga klukkutíma i framleiðslu enda eiga Vængirnir og tæknimál ekki alveg skap saman. Við þökkum Leifi Benediktssyni fyrir hvatninguna og stefnum á að að taka upp fleiri þætti sem fyrst.…
Afmæli félagsins okkar í dag og það eru margar gjafirnar sem má gleðjast yfir þessa dagana. Af því tilefni fengum við einn okkar dáðasta son í spjall, Birkir Már settist i Toggastofu til að fara yfir hlutina og það var af nógu af taka. Maí er kannski okkar skemmtilegasti mánuður þar sem barist er á nánast öllum vígstöðvum og Birkir og fjölskyldan daglegir gestir í Valsheimilinu. Birkir átti stórleik á dögunum gegn KR-ingunum og lagði upp þrjú mörk. Við fórum yfir leikinn sem hann segir jafnvel komast á topp fimm listann yfir bestu leiki sem hann hefur tekið þátt í. Og þar er af nógu að taka. Við ræddum líka úrslitaeinvígið í körfunni sem er við suðupunkt en Birkir hefur ekki látið sig vanta á þá leiki. Við erum orðnir feykispenntir fyrir leiknum á morgun og upphitun í Fjósinu frá væntanlega miðjum degi. Við ræddum líka úrslitaeinvígið framundan við ÍBV í kvennahandbolta og og okkar nýjustu Íslandsmeistarara í körfu kvenna. Við sögu kemur líka háskólanám í sænsku og Tik-Tok vídjó, svo já, það var farið vítt yfir um það bil 40 mínútum. Hlökkum til morgundagsins og að sjá ykkur í næstu stríðum!…
Arnór Ben, einn harðasti stuðningsmaður Vals settist niður með Vængjunum að loknum leik Vals og Stjörnunnar í Origo í úrslitakeppninni í körfu karla. Við höfðum nauman tíma áður en húsinu var lokað en ræddum stórsýningu Kára Jónssonar í leiknum, stöðuna í einvíginu við Stjörnuna og Hauka kvennamegin í körfunni og mögulegan þríhöfða hjá okkur Völsurum á sunnudaginn næstkomandi þegar Valur spilar meðal annars við Blika í Bestu deild karla. Þá gerðum við upp leikinn við ÍBV í fyrstu umferð Bestu deildar karla en Arnór er einn þeirra sem heldur úti Fasteignafélaginu á FB sem skilar skýrslum um leikina í Bestu. Njótið hér. Eða á öllum helstu hlaðvarpsveitum.…
Við settumst niður í Toggastofu í dag og reyndum að fara yfir allt það helsta sem snýr að okkar ástkæra félagi þessa dagana og þar er að nógu af taka! Líkt og flestir hafa áttað sig á þá er marsmánuður senn á enda sem þýðir yfirvinna á Valsara og útsjónarsemi með dagatalið. Við fórum aðeins yfir bikarúrslit kvenna í handbolta nú um helgina, undanúrslitin í Lengjubikarnum, og stöðuna hjá meistarflokkunum í körfunni nú þegar stutt er í úrslitakeppnina. Og svo er það morgundagurinn! Framundan er sannkallað stríð gegn þýska stórliðinu Göppingen hjá strákunum í handboltanum og ljóst að Evrópuhöllin okkar mun skartasta sínu fegursta annað kvöld. Þetta verður geggjað! Óskari Bjarna fékk sérstakar hamingjuóskir með stórafmælið á dögununum og í seinni hluta þáttar kom svo Arnar Grétarsson í heimsókn. Það er alltaf gaman að hlusta á Arnar. Strákarnir hans unnu Víking í vikunni og eru að fara til Tene að tana og æfa en nú er komið að lokahnykknum á undirbúningstímabilinu fyrir alvöruna sem hefst 10. apríl Þeir stefna hátt – eins og alltaf. Sjáumst hress á morgun á Evrópukvöldi með gleðina að vopni!…
Hér er dottinn inn sérstakur upphitunarþáttur fyrir stórleikinn í Evrópudeildinni í handknattleik annað kvöld þegar Valsmenn mæta franska liðinu Pauc. Af þessu tilefni var farið á sérstakan Evrópurúnt í hlaðvarpinu Vængjum þöndum. Við byrjuðum í Skipholtinu hjá Sigfúsi Sigurðssyni en hann afgreiddi af miklum móð fiskibollur í tilefni dagsins. Fúsi hefur að sjálfsögðu ekki látið sig vanta á leikina í vetur og hann ræddi við okkur um hans tilfinningu fyrir liðinu og leiknum á morgun. Þaðan var brunað á Hlíðarenda þar sem æfing liðsins var að klárast og verið að stilla upp í blaðamannafund fyrir leik morgundagsins. Það var margt góðra manna á svæðinu. Gaupi kom í stutt spjall sem lofaði að hann myndi gefa allt í þetta í stúkunni annað kvöld og í lokin náðum við í skottið á Degi Sigurðssyni, fórum yfir m.a. yfir Evrópuleikina í vetur, umgjörðina, möguleikana á morgun og hvernig keppnin getur lyft íslenskum handbolta. Nú er að hafa hraðar hendur að tryggja sér miða enda stefnir í hörku mætingu enda fátt skemmtilegra en Evrópukvöld á Hlíðarenda.…
Olís deildin í handbolta er farin að rúlla af stað á nýjan leik eftir HM-hléið. Við fengum Björgvin Pál í smá heimsókn í Toggastofu og fórum yfir vertíðina framundan í handboltanum. Við ræddum aðeins heimsmeistaramótið sem er að baki, Evrópuleikina næstu vikurnar þar sem allt verður undir og taktinn að spila tvo leiki á viku í deild og Evrópu. Valsliðið er þessa stundina á ferðalagi til Flensburg þar sem er framundan spennandi verkefni gegn einu besta liði Þýskalands. Við fórum svo líka stuttlega yfir stöðu handboltans almennt með Bjögga. Njótið!…
Arnar Grétarsson, þjálfari okkar í fótboltanum, settist í Toggastofu eftir matarbita í Fjósinu. Trúlega hefði þetta geta verið fimm tíma spjall enda ekkert eðlilega gaman að tala um fótbolta við Arnar. Hann er hafsjór af fróðleik og metnaðurinn hreinlega lekur af honum. Hann vill gera allt til að vinna. Og hér er klukkutímaspjall um hvernig við förum upp í hæstu hæðir á ný. Leiðin þangað er grýtt en Arnar hefur skýra sýn um það hvernig hann vill gera hlutina. Jóhann Alfreð forfallaðist á síðustu stundu vegna Gettu Betur sem hefst innan tíðar en við Breki mættum í Toggastofu til að fara yfir hlutina með Arnari sem gerði fjögurra ára samning í nóvember. Við þökkum vinnuveitendum okkar kærlega fyrir skilninginn á sérverkefnum fyrir Val. Arnar er margreyndur landsliðs- og atvinnumaður í knattspyrnu, lék með liðum eins og Glasgow Rangers, AEK Athens, KSC Lokeren og á 72 leiki með A landsliði Íslands. Eftir að knattspyrnuferlinum lauk tók Arnar við sem tæknilegur ráðgjafi hjá AEK Athens í Grikklandi og síðar sem yfirmaður knattspyrnumála hjá ClubBrugge í Belgíu. Þjálfaraferill Arnars hófst hjá Breiðablik og síðar tók hann við liði Roeselari í Belgíu áður en hann tók við stjórnartaumum hjá KA. Við Vængjamenn erum spenntir fyrir komandi tímum með Arnar í brúnni og vonum að þið séuð það líka. Í seinni hlutanum fórum við örstutt yfir komandi bikarviku í körfuboltanum, okkar menn í landsliðinu og svo Evrópukeppnina í handboltanum þar sem verður spilað alla þriðjudaga í febrúar.…
Áramótaþáttur Vængjum þöndum. Í Valsblaðinu sem kom út fyrir stuttu síðan mátti finna viðtal sem bræðurnir Dagur og Bjarki Sig tóku við Pavel Ermolinskij í Toggastofu. Spjallið þeirra var tekið upp og birtist nú í hlaðvarpinu í lengri útgáfu. Það er eiginlega næg kynning og engu við það að bæta. Njótið vel og gleðilegt ár kæru Valsmenn. Takk fyrir hlustanir og takk fyrir árið 2022 þar sem sex titlar komu í hús. Heyrumst á nýju ári.…
Snorri Steinn Guðjónsson, þjálfari Meistaraflokks karla, kom í Toggastofu, til að fara yfir þær áskoranir sem eru framundan hjá liðinu. ÍR í kvöld, FTC á þriðjudag á dúknum í Origo í Evrópudeildinni, Grótta á föstudag og loks Benedorm á laugardag. Já, það er nóg framundan og þjálfarinn talaði tæpitungulaust og fór ekki í felur með hversu stórt þetta Evrópuævintýri okkar er. Snorri er einstakur maður og það er gaman að hlusta á hann tala af ástríðu um liðið okkar og félagið. Þetta er góð hlustun. Við eiginlega lofum. Í síðari hlutanum settumst við Vængjamenn niður og rúlluðum vítt yfir sviðið. Ræddum meðal annars lokasprettinn í Bestu deild karla og þjálfaraskiptin framundan. Góða helgi kæru Valsarar. Og sjáumst svo öll þriðjudag. Hvað það verður gaman!…
Það var rífandi stuð i Toggastofu þegar einn af okkar bestu félagsmönnum Björgvin Páll Gústavsson fékk sér sæti, nýkominn af sófadögum Húsgagnarhallarinnar. Bjöggi hefur komið eins og stormsveipur inn i félagið okkar og Valssporið er ein af hugmyndunum sem hann hefur verið að útfæra þar. Hann fór yfir mjög spennandi vetur sem er framundan í handboltanum og stemmninguna fyrir ævintýrinu sem er handan við hornið út um alla álfuna í Evrópudeildinni i handbolta og uppganginn í íslenskum handbolta. Rétt áður en Björgvin leit við var litið yfir leiki Vals og Breiðablik í karlaboltanum og í fræknum bikarúrslitaleik kvenna.…
ขอต้อนรับสู่ Player FM!
Player FM กำลังหาเว็บ